Borgarferð

Heil og sæl.

Við hjónakornin vorum að lenda á norðlenskri grund eftir helgardvöl í henni Reykjavík.Frá mótmælunum við lögreglustöðina við Hverfisgötu í gær. Nei við vorum ekki í mótmælendahópi helgarinnar á Austurvelli né í háreystum hópi fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötunni. Laugardeginum var eytt á þeim óskemmtilega stað Kringlunni í leit af jólagjöfum. Við vorum greinilega ekki þau einu sem ákváðu að eyða deginum þar því fullt var útúr dyrum. Engin kreppa í Kringlunni.......

Ég reyndi árangurslaust að finna mér skjólflík fyrir veturinn en fann ekkert undir 50 þúsundum svo gamla úlpan verður bara að duga þangað til íslenska krónan styrkist.

 Bjart framundanSpaugilega við þessa ferð var þó að Reykjavík var full af allra þjóða túristum sem greinilega voru í versluferð með evrurnar sínar. Þeir hikuðu ekkert við að versla í 66 gráðum þs úlpurnar kosta 50 þúsund plús og örkuðu klifjaðir um Kringluna (þs engin kreppa er). 

 

Annars var erindið kvöldverðarboð samninganefndar læknafélagsins en alveg átti eftir að fagna kauphækkun læknastéttarinnar sem náðist naumlega fyrir hrun bankanna. Það var kannski ekki seinna vænna því nú stefnir í að sú stétt ásamt fleirum þurfi að taka á sig kjaraskerðingu og þá hverfur nú þessi 6 % hækkun fljótt ef hún er ekki nú þegar orðin að engu. Þarna voru mættur góður hópur lækna af ýmsum gerðum ásamt betri helmingi og áttum við góða kvöldstund saman. 

Ágætis ferð þs batteríin voru hlaðin. Njótið dagsins.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 53564

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

222 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband