Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Þjóðin hefur kosið.

Þjóðin hefur valið fulltrúa fyrir Íslands hönd til að taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Moskvu í maí n.k. Það var Jóhanna Guðrún sem hreppti hnossið og er hún vel að sigrinum komin og verður okkur áreiðanlega til sóma þegar hún flytur lag Óskars Páls Sveinssonar Is it true.

Áfram Ísland Smile


mbl.is Lagið Is it true til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úbs......snýr vitlaust

image001

 

 

Fékk þessa senda í tölvupósti frá vinkonu sem er í Mývatnshópnum með þessum orðum : Stelpur við látum nú ekki sjá okkur svona í Lóninu.....Wink

 


Tilhlökkun

Í þessari færslu verður ekki minnst á kreppu, Seðlabanka, AGS eða nokkuð annað leiðinlegt nema í þessari einu setningu.

Nú er talið niður fyrir skemmtiferð í Mývatnssveit, við veljum íslenskt að sjálfsögðu Wink. Hér er á ferðinni góður hópur sem samanstendur af 5 læknum, 4 hjúkrunarfræðingum og einum rekstrarfræðingi og þau eru síðan gift hvort öðru. Algengasta samsetningin er læknir og hjúkka en þó má finna eitt par af lækni og rekstrarfræðingi sem ákváðu að eyða lífinu saman, kannski ekki vitlaust á þessum síðustu og verstu tímum. Hópurinn hefur haldið saman í mörg ár og bryddað uppá skemmtilegheitum inná milli og nú er semsagt kominn tími á slíka upplyftingu.

Eins og áður sagði er stefnan tekin á Mývatnssveit. Þar mun fagurt vera og hægt að baða sig í Bláu lóni.

Ekki veit ég hvort pantaður var pakki hjá Jónínu Ben en ég vona það þó síður því eigi vil ég slöngu upp í rassinn fá W00t. Meðferð hennar var þó rómuð hér í fjölmiðlum fyrir stuttu en ég er full tortryggni samt sem áðurErrm.

Helginni verður að sjálfsögðu eytt á hóteli til að vera atvinnuskapandi í hugsun og gerðum . Ég stakk nú uppá því að nöfnin okkar yrðu sett í einn pott og síðan dregið í herbergin svona til að brydda uppá smá nýjungum og tilbreytingu í svartnættinu Wink en það fékk lítinn hljómgrunn enda allir í hópnum vel og harðgiftirInLove eins og reyndar áður hefur komið fram í þessum pislti mínum.

Reikna má með einhverri útiveru og hver veit nema við klífum fjöll og klofum snjó eða  veljum auðveldu leiðina og förum á fjöll ríðandi snjósleða á, það kemur allt í ljós. Þá má reikna með að menn spreyti sig í veiði gegnum ís á hinu stóra Mývatni nema að hlákuskömmin komi í heimsókn áður. 

En eitt er víst að alltaf verður , ákaflega gaman þá Smile.

Eigið góðan dag og munið að gefa smáfuglunum í kuldanumSmile .

 


Fæst orð bera minnsta ábyrgð !

Alveg er þetta með ólíkindum með æðstu embættismenn landsins. Ætla þeir aldrei að læra að fæst orð bera minnsta ábyrgð. Ég tala nú ekki um þegar verið er að tjá sig um mikilvæg málefni heillar þjóðar við erlenda fjölmiðla. Sumir fjölmiðlar taka líka allt úr samhengi sem gerir allt mikið verra. Svo set ég spurningamerki við að forsetinn tjái sig um svo hápólitískt og eldfimt málefni sem þetta hlýtur jú að teljast.

Held að við höfum skapað okkur nógar óvinsældir erlendis varðandi þessar blessaðar skuldir. Amen ! 


mbl.is Forseti Íslands sendir yfirlýsingu til þýskra fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir lengi lifi. Húrra,húrra ,húrra !!

 

Og þetta er maðurinn sem stjórnar í Seðlabankanum......Ennþá allavega !! Traustvekjandi ?

(Tekið af youtube.com) 


Lífið er yndislegt !

Það er svo gaman þegar okkar mönnum gengur vel. Í gær sýndu þeir sinn mikla styrkleika þegar þeir unnu Hermann Hreiðars og félaga í Portsmouth eftir að hafa legið undir á útivelli. Seinnihálfleikurinn  bauð upp á 5 mörk og þar áttu Liverpool  hamingjusamlega 3 þeirra. Svo er bara að sjá hvað gerist í ensku í dag. Það væri svo sem ekkert slæmt að United tapaði gegn West Ham í dag Smile .
mbl.is Liverpool á toppinn eftir magnaðan sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegur leikur

Já þetta er búinn að vera ótrúlegur leikur. Mjög mikil harka hjá báðum liðum. Everton voru mjög grófir í fyrri hálfleik og voru heppnir að halda sínum mönnum öllum inná.Léleg dómgæsla þar. Leikur Liverpool markaðist mikið af hvarfi fyrirliðans en hann fór útaf eftir 15 mínútur sennilega vegna meiðsla. Það var svo til að kóróna allt þegar Lukas fékk að líta rauða spjaldið eftir tvö gul, fyrra brotið var mjög saklaust miðað við hvað bláliðarnir komust upp með í fyrri hálfleik. Torres er kominn útaf og þá er bara að sjá hvort Babel geri einhverjar rósir en hann leysti Spánverjann af hólmi. Áfram LiverpoolSmile .
mbl.is Gosling sló Liverpool útúr bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mömmubragur

 Það þarf ekkrt að útskýra þetta held ég. Fengið að láni hjá youtube.com.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

248 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband