Helgin nálgast, jibbý

Góðan og blessaðan föstudag já þann síðasta í septembermánuði. Tíminn fjýgur sannarlega áfram og með þessu áframhaldi verða komin jól fyrr en varir Wink

Ég ákvað að taka smá hlé frá bloggi vegna heitrar umræðu hér á blogginu mínu síðustu daga og vikur. Já nú veit ég þó hvernig maður á að æsa lýðinn upp. Það er bara að vera svolítið fanatískur á tóbak og hata Manchester United þá fær maður viðbrögðWink. Sjálfsagt væri hægt að kríja út nokkur komment líka ef ég segðist ánægð með nýjasta ritstjórann á Morgunblaðinu en það er bannað að skrökva svo ég læt það ógert.Sjálfsagt hefur hálf þjóðin tjáð sig um það mál síðasta sólarhringinn en ég á eftir að sjá að menn segi Mogganum upp eða hætti að lesa Mbl.is og kveðji Moggabloggið. Það væri auðvitað það eina rétta ef menn vilja sýna andstöðu sína. Það þýðir ekki að skvetta endalausri rauðri málningu á hús óvinanna, kannski þurfum við að láta verkin tala meira. Segja upp Mogganum, hætta að versla í Bónus, segja upp Stöð 2 osfrv til að minna á að við erum ekki búin að gleyma ! En kannski er það ekki til neins heldur. Við erum bara peð í stóru tafli.

En nóg um það. Framundan er bara yndisleg helgi í sumarbústað með gömlum og góðum vinkonum. Ætlum að eta á okkur gat,hlægja okkur máttlausarGrin, grenja yfir væmnum myndumFrown, verða að rúsínum í heita pottinumCool og svo að sjálfsögðu að viðra okkur í yndislega fallegum haustlitumCool. Var að spá í hvort ég ætti að lauma veiðistönginni með því ég veit af einni á í nágrenninu en reyni að sitja á mér.....Wink.

Eigið góða helgi ! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 53522

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband