Gubb og gaman

Gott og blesað kvöldið !

Eins og síðasta færsla gaf til kynna lagðist fölskyldan í flæking í gær með stefnuna á Símamótið í Kópavogi. Heimasætan fór reyndar með flugi um morguninn til að missa nú ekki af neinu og gisti með liði sínu KA í Salaskóla. Ferðalag hinna í fjölskyldunni landleiðina gekk vel þangað til litla skrudda ældi út um allan Pajeróinn í Hvalfjarðagöngunum af öllum stöðumSick. Við gátum nú lítið gert annað en að hlustað á gubbuhljóðin og vonað að sem minnst færi í bílinn og barnastólinn.Það má lengi halda í vonina en okkur varð semsagt ekki að ósk okkar og stóðum við í þrifum á bíl og stól langt framyfir miðnættiGasp. Litla skrudda var hinsvegar hin hressasta eftir þennar Geysi í Hvalfjarðagöngunum og heimtaði bara mat eftir að fellihýsið var reist á túnflöt í Kópavoginum í nágrenni við fótboltasvæði Breiðabliks. Nóttin hjá okkur leið án uppákoma þangað til við hrukkum upp við símhringingu í morgunsáriðW00t. Það var fararstjóri heimasætunnar og hinna KA stúlknanna, heimasætan var komin með gubbupest og fyrsti fótboltaleikurinn á næsta leyti. Heimasætan var að sjálfsögðu niðurbrotinPouty, hún reiknaði með að missa af leikjum dagsins og stutt var í tárinErrm. Mínútu fyrir fyrsta leik dreif sú stutta sig hinsvegar á fætur og sagði:"Ég ætla að spila". Hún spilaði síðan alla fjóra leiki dagsins á meiri vilja en getu og stóð sig velSmile. Stelpurnar unnu 3 leiki og gerðu eitt jafntefli. Þetta kallar maður hörku og ég er nú bara býsna stolt af afkvæminu og reyndar stelpunum öllum því þær voru að spila á móti alvöru liðum. Svona á að gera þetta stelpur. Vonandi verða allir heilsuhraustir í fyrramálið. Áfram KA Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 53527

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

233 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband