Tilraun til úrbóta

Gott og blessað föstudagskvöld á degi okkar kvenþjóðarinnar.

Ef fyrirbærið bloggleti er til hefur hún svo sannarlega dregið mig á tálar síðurstu daga og vikur. Nú skal gerð tilraun til úrbóta, á þessum annars fallega en ískalda degi hér norðan Alpafjalla. 

Ég og mín fjölskylda brugðum okkur í frí austur á æskustöðvar mínar þ.e.a.s hinn margfræga JökuldalWink. Móðir mín í kví,kví fyllti sjö tugi fyrir skömmu og hélt mikla veislu á aðalsamkomustað sveitarinnar Á HreindýraslóðumWizard. Við létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta á þá samkundu. Barnabörnin hennar sáu að mestu um skemmtiatriðin og fórst það vel úr hendi. Veislan var sannkölluð Elvisþema og átti það vel við þar sem sú gamla hefur dýrkað rokkgoðið frá örófi aldaWhistling. Þegar líða tók á kvöldið færðist fjörið útí nýreista Hákonarstofu og þar kyrjuðu menn undir gítarleik í birtu og yl af varðeldinum góða.

Veiðarfærin voru að sjálfsögðu tekin með í sveitina, bæði Ellingsen og stangirnar. Haldið var uppí heiði og uppskeran var svo sannarlega góð. Ég fékk tvær bleikjur á stöng, önnur 3ja punda en hin 4ja og hef ég aldrei fengið svo stóra bleikju á stöng áðurSmile. Ég hef heldur aldrei kastað með ullarvettlingum áður en mjög kalt var í veðri þennan dag. Stærri bleikjur fengust í Ellingsen veiðarfæri og sú síðasta sem leit dagsins ljós var heil sjö pund. Karl faðir minn var að springa úr monti þegar hann, tengdapabbi og minn heittelskaði komu úr heiðinni með fenginn stóraJoyful.

Mikill laxveiðihugur hefur gripið um sig í sveitinni eftir að Jökla gamla var beisluð uppí Kárahnjúkavirkjun. Félagið Strengir á heiður af því. Sama dag og við köstuðum kveðju á fólkið mitt var nýbúið að útbúa sleppitjörn við Hneflu en það er bergvatnsá sem rennur fram hjá æskuheimilli mínu ofan í Jöklu og hefur svæft mig í gegnum árinSleeping. Hver veit því nema maður eigi eftir að renna fyrir lax í Hneflu á komandi árum ? Pabbi gamli er því orðinn seiðabóndi en hann ætlar að fóðra seiðin áður en þau fara á vit ævintýranna niður Jöklu og ofan í sjó.

"Burte er bra en hjemme er best "segja Norsararnir og það sama gildir hér. Það var því gott að sofna í sínu bæli í gærkveldi og svaf fjölskyldan óvenju lengi í morgun. Í gærkveldi lenti ég reyndar óvænt á tónleika með hinum stórskemmtilega KK og var það heldur ekki til að spilla nætursvefninumJoyful.

Á morgun er stefnan sett á Kvennahlaup með heimasætunni en hún ætlar að spreita sig á 4 kílómetrum og mamma gamla ætlar að skokka með henni og hvetja hana áfram. Málstaðurinn er jú góður svo ekki sé nú minnst á félagsskapinn. Það er vonandi að Bíladagagengið verði lagst til hvílu þegar við dömurnar mætum á Ráðhústorg í fyrramálið en þessum Bíladögum hefur alltaf fylgt mikið öl og böl og verið bænum frekar til ósóma frekar en hittWoundering

Vonandi eigið þið gott föstudagskvöld og konur til hamingju með daginn í dag og á morgunSmile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

vona að skokkið hafi gengið vel

kveðja norður til þín

Sigrún Óskars, 21.6.2009 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 53574

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

219 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband