22.1.2009 | 13:34
Óeirðir á Íslandi
Góðan og blessaðan daginn. Hér fyrir norðan er allt í ró og spekt en það er ekki hægt að segja það sama um ástandið í höfuðborg Íslands. Já hver hefði trúað því að atburðir síðustu daga ættu eftir að gerast á gamla, góða,friðsæla Íslandi. En það er engu að síður staðreynd. Fólk er greinilega alveg búið að fá upp í kok af ráðamönnum landsins . Ég held að það þess verði ekki langt að bíða að óstarfandi ríkisstjórn leggi upp laupana og axli þar með loksins ábyrgð og leyfi öðrum að spreyta sig sem þjóðin hefur trú á. Hverjir það verða skal ósagt látið en það er kannski ekki það mikilvægasta. Það mikilvægasta er að það komist fólk sem þjóðin treystir.
Mótmælin syðra hafa hinsvegar algerlega farið úr böndunum og grunar mig að lítill hópur fólks beri ábyrgð á því. Ég vona allavega að það sé ekki "þjóðin" sem er að grýta löggæslumenn landsins sem eru að sinna skyldum sínum. Það gerir mótmælendur ekkert betri en þá sem verið er að mótmæla gegn.
Það var hreinlega neyðarlegt að heyra í Geir Harde í Kastljósi gærkvöldsins. Hann hafði akkurat ekkert fram að færa nema það að hann og hans menn ætluðu að sitja sem fastast áfram í ríkisstjórn. En Geir hefur nú sagt svo margt síðustu mánuðina sem á ekki við rök að styðjast.
Eigið góðan dag og mótmælið friðsamlega.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Gunnublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Arnarsetrið Vefmyndavél af arnarhreiðri við Breiðafjörð,smellið á arnarsetrið sem er til vinstri á síðunni.
- Facebook.com
- Mokveiðifélagið Skagafirði Doktorinn,Magnum, Smiðurinn,Djammarinn og fleiri góðir
- Margrét
- Grétublogg
- Hjúkrunarfélag Íslands love,tender,care
- Líkamsræktin Bjargi Blóð,sviti og tár
- Kaupþing money,money,money.....
- Skólamáltíðir nammi,nammi,namm
- norskt dagblað norske nyheter
- Menntaskólinn á Akureyri menntun er máttur
- gamla góða Ríkissjónvarpið þetta gamla,góða
- Stangveiðifélag Akureyrar lax,lax,lax og aftur lax.....
- Fjársýsla ríkisins/vinnustund vaktirnar mínar
Bloggvinir
- eurovision
- heidistrand
- ringarinn
- jeg
- jakobk
- jenfo
- jonaa
- larahanna
- sigro
- seth
- siggith
- stebbifr
- solskinsdrengurinn
- tigercopper
- kermit
- postdoc
- ossur40
- ofurbaldur
- bjarni
- bjb
- gattin
- dunni
- esv
- hallgrimurg
- heidathord
- hlynurh
- lax
- kollakvaran
- reisubokkristinar
- palmig
- ragjo
- sedill
- sesdoc
- svavaralfred
- nautabaninn
Athugasemdir
eru einhverjir sem hægt er að treysta? ég bara spyr! kannski voru stjórnmálamennirnir of "innvinklaðir" í góðærið sem var.
vona bara að friður komist á þjóðmálin með vorinu (kosningar 9.maí).
Sigrún Óskars, 23.1.2009 kl. 21:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.