Lítil saga af láni og sitthvað fleira

Góðan daginn.

Var að skoða reikninga frá Íbúðalánasjóði í gær og viti menn sl 7 mánuði hefur lánið okkar hækkað um 1 milljón Angry. Við tókum upphaflega 8 milljóna króna lán, í dag stendur það í 10,6 milljónum. Mánaðarlegar greiðslur hljóða uppá 56 þúsund þaraf eru 32 þúsund vextir. Afborgun að höfuðstólnum er um 6 þúsund. 

Skil ekki alveg þetta nýjasta í bankamálaumræðunni. En ef ég skil það rétt virðist sem yfirmenn í Kaupþingi hinu gamla hafi slegið lán hjá bankanum sem þeir störfuðu hjá til að geta keypt hlutabréf í sama banka.Svo var bara allt afskrifað þegar bankinn fór á hausinn eða þegar ríkið tók yfir bankana. Leiðréttið mig endilega ef þetta er misskilningur.  Ég er reyndar ekki viðskiptamenntuð en ég lærði um debet og kredit á sínum tíma og það er jú það sem þetta snýst um í aðalatriðum, eða hvað ?? 

Nóg um það. Það eru leikir í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Okkar menn mæta Atl.Madrid  og fer leikurinn fam á Anfield. 

Langbestir

 

 

Vonandi eru piltarnir Liverpool búnir að jafna sig eftir fyrsta tapið í deildinni gegn Tottenham á laugardaginn var. Ekki er útilokað að Torres verði með í kvöld. Ef við vinnum þennan leik og önnur úrslit verða okkur hagstæð er líklegt að við komumst áfram.

 

 

 

 

 

Forsetakjör í Bandaríkjunum fara nú loksins fram. Mér finnst eins og þessi kosningabarátta sé búin að vara í mörg ár. Spáið í fjármagnið sem er búið að fara í þetta bull. Obama virðist líklegur sigurvegari að mér skilst. Fólk er svo heillað að manninum að það er tilbúið að bjóða fram kynlíf  til að fá miða á síðasta kosningafund kappans,já það er ekki öll vitleysan eins.

Við höldum áfram að vera stærst og best í öllu. Nú erum við með hæstu verðbólgu í heimi (OECD ríkjunum). Áfram Ísland Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 53510

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

239 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband