Föstudagur til fjár...

Góðan og blessaðan.

Jæja það er bara kominn föstudagur. Eins og máltækið segir að þá var föstudagur einhvern tímann til fjár en held varla að það standi undir nafni núna.

Mín búin að fara í ræktina og taka rækilega á því, moka snjó af svölunum, taka einn rúnt um húsið í léttri tiltekt og setjast niður með vinkonu í hádeginu og þamba skyrbúst og bryðja grænmeti og klukkan bara eitt eftir hádegi. Finnst þetta bara nokkuð vel af sér vikið miðað við aldur og fyrri störf Wink.

Kollegar mínir streyma í Sjallann í kvöld á árshátíð sjúkrahússins. Mín ákvað að sitja heima þetta árið, meiri ræfilsdómurinn í manni,auðvitað hefðum við átt að drífa okkur. 

Mynd021_2

 Minn kæri Páll Óskar DJ kvöldsins og allt. Jæja maður drífur sig bara næst. Það er nú einu sinni kreppa og þá á maður að spara ekki satt ???  

Þessi stórglæsilega mynd var einmitt tekin á árshátíðinni í fyrra og þá lét mín sig ekki vanta og Palli ekki heldur Wink.

En kæra sjúkrahúsfólk ! Skemmtið ykkur hrikalega vel í kvöld og etið og drekkið eins og þið getið í ykkur látið Tounge.

Nýjasta pick-up línan: Sæææll ! Ég er ríkisstarfsmaður InLove.

 

Stelpurnar okkar í fótboltanum komnar áfram í EM 2009 eftir að þær lögðu Írana á ísilögðum Laugardalsvellinum í gær. Glæsilegur árangur það.

Heimasætan mín er að fara að keppa með 5.flokki í dag og 6.flokki á morgun. Hún ætlar að verða næsta Margrét LáraSmile. Flott markmið það.

Eigið góðan föstudag og vonandi verður hann til fjár líka Smile 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Halló - hvernig er hægt að missa af balli þar sem Páll Óskar er dj? Hann er bara gleðipinni drengurinn

Sigrún Óskars, 1.11.2008 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

219 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband