13.10.2008 | 15:20
Mánudagurinn runninn upp
Góðan og blessaðan daginn. Þrátt fyrir allar hremmingar er yndislegt haustveður hér á Akureyri og ég búin að hjóla í ræktina, taka á því og hjóla heim aftur. Sit nú með bústið mitt og blogga aðeins í leiðinni (skrifað í morgun). Lífið heldur semsagt áfram þrátt fyrir allt.
Ég og mín fjölskylda búin að leggja land undir fót um helgina og fara á æskustöðvar húsmóðurinnar, hinn dæmalaust fagra Jökuldal. Það var ekki slegið slöku við í sveitinni frekar en venjulega.
Réðumst í sláturgerð af miklum móð þs lifrar voru hakkaðar, mörinn brytjaður og blóðið rann.....merkilegt að þetta skuli bragðast svona vel .......
Unga kynslóðin var áhugasöm um þessa gömlu matargerð og lagði sitt af mörkum í sláturgerðinni .
Þá var að sjálfsögðu aðeins heilsað uppá búfénað bróður míns þar sem rekið var í rétt og í fjárhús.
Dáðst var að fögrum lífgimbrum og heilsað upp á uppáhaldsærnar sem við höfðum ekki séð síðan í vor. Góðir endurfundir það.
Semsagt yndislegt að komast aðeins af mölinni sérstaklega núna á þessum síðustu og verstu tímum.
En helgin leið hratt og mánudagurinn rann upp. Loforð um að bankaviðskipti ættu að vera komin í nokkuð eðlileg horf eftir helgi voru orðin tóm. Gjaldeyrisviðskipti í bæði Kaupþing og Glitni liggja niðri og Kauphöllin er áfram harðlæst. Svo les maður á bleiku síðum dagblaðanna að Jón Ásgeir og föruneyti sé bara út á lífinu og sötri vínflöskur upp á sautjánþúsund kallllll......Verði þeim að góðu. Gæti verið síðasta tækifærið......Skál !!!!
Spaugstofumenn voru að sjálfsögðu á léttu nótunum á laugardagskvöld og þátturinn var sannarlega með rússnesku sniði. Kannski ekki að undra því Rússar eru einu vinir okkar þessa dagana...... Eru menn ekki á leið til Rússlands að sníkja smá lán núna ????
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Gunnublogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Arnarsetrið Vefmyndavél af arnarhreiðri við Breiðafjörð,smellið á arnarsetrið sem er til vinstri á síðunni.
- Facebook.com
- Mokveiðifélagið Skagafirði Doktorinn,Magnum, Smiðurinn,Djammarinn og fleiri góðir
- Margrét
- Grétublogg
- Hjúkrunarfélag Íslands love,tender,care
- Líkamsræktin Bjargi Blóð,sviti og tár
- Kaupþing money,money,money.....
- Skólamáltíðir nammi,nammi,namm
- norskt dagblað norske nyheter
- Menntaskólinn á Akureyri menntun er máttur
- gamla góða Ríkissjónvarpið þetta gamla,góða
- Stangveiðifélag Akureyrar lax,lax,lax og aftur lax.....
- Fjársýsla ríkisins/vinnustund vaktirnar mínar
Bloggvinir
- eurovision
- heidistrand
- ringarinn
- jeg
- jakobk
- jenfo
- jonaa
- larahanna
- sigro
- seth
- siggith
- stebbifr
- solskinsdrengurinn
- tigercopper
- kermit
- postdoc
- ossur40
- ofurbaldur
- bjarni
- bjb
- gattin
- dunni
- esv
- hallgrimurg
- heidathord
- hlynurh
- lax
- kollakvaran
- reisubokkristinar
- palmig
- ragjo
- sedill
- sesdoc
- svavaralfred
- nautabaninn
Athugasemdir
já og sumir eru að fara að veiða þorsk hjá Rússunum, ætli Putini sé ekki orðin persónulegur vinur okkar hér, kannski fær hann jólakort frá okkur - hver veit!
Hafdis (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 16:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.