Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Harðindi

Góðan og blessaðan daginn gott fólk og gleðilegt ár WizardWizardog hafið þökk fyrir það gamla sem svo sannarlega er rokið út í veður vind. Það nýja heilsar aldeilis með hressandi hviðum í andlitið og hvítri þykkri mjöll sem var þó búin að sýna sig fyrir nokkru hér norðan heiða.

Það eru ekki margir dagarnir sem okkur er ráðlegt að halda okkur heima með börnum okkar vegna óveðurs og ófærðar en einn slíkur heilsaði okkur í dag á sjöunda degi á nýju ári. Það væri kannski ekki svo vitlaust að hafa svona innidaga nokkrum sinnum á ári því þetta hlýtur jú að teljast fjölskylduvænt og samverustundum fjölkyldna fer jú fækkandi það er ég best veit. Svo hér sit ég við eldhúsborðið með litla sprelligosanum mínum og leira snúðakastala úr glansleirSmile

Gerði reyndar heiðarlega tilraun til að mæta í vinnu en sá draumur var úti þegar ég opnaði dyr leikskólans og komst að því að ég hefði átt að halda mig heima og ekki væri tekið á móti börnum  í dag nema í ítrustu neyð. Svo ég og sú stutta fórum bara heim, skriðum undir sæng, ég náði nokkrum blaðsíðum í Irsu og hún kláraði heila mynd. Ég tók auðvitað fréttirnar á slaginu átta í morgun eins og hálf þjóðin þar sem mörgum skólum var aflýst nema á Akureyri, þar var fólk hvatt til að vera heima. En maður er nú hvattur til að gera svo marga hluti sem maður svo ekki gerir að einhverjum ástæðum.

En ekki gátum við litla ofvirk legið í rúminu í allan morgun og var því hafist handa við að koma jólaskrautinu niður í kassa. Jólatrénu verður þó gefið "líf" í nokkra daga í viðbót Haloenda pungað út nokkrum þúsundköllum fyrir því á sínum tíma. Tréð sem okkur langaði þó mest í kostaði þó margfalt meira eða um 16.þúsund krónur enda barrheldið með eindæmum....en það er nú önnur saga. Jólaseríurnar fá líka að loga einhverja daga í viðbót enda veitir ekki af ljósum til að lýsa okkur í stórhríðinni þessa síðustu og verstu daga.

Heimasætan mín fylgdist aldrei þessu vant grannt með veðurspá í gærkveldi og var þess fullviss að hún færi ekki í skólann vegna óveðurs í dag. Hún tók því hvatningarorð Akureyrarbæjar um að fólk ætti að halda sig heima mjög svo hátíðlega á meðan móðir hennar dúðaði sig og ætlaði nú ekki að láta eitthvert óveður stoppa sig enda alin upp á Jökuldalnum þs menn kalla nú ekki allt ömmu sínaTounge.

En hér sit ég og get ekki annað og leira með glansleir eins og áður sagði. Glansa orðið eins og jólaskraut af leirnum, kannski eins gott til lífga uppá umhverfið eftir að alvörujólaskrautið hvarf ofan í pappakassana. Sú litla ofvirka er löngu horfin úr leirnum og farin að gera eithhvað annað. Líkaði ekki að mamma gamla veitti henni ekki 200 % athygli......Wink

Jæja gott fólk, vona að þið eigið góðan föstudag og helgi framundan. Á morgun skal engin stórhríð hindra að ég komist í vinnu. Bank,bank,bank og 7,9,13.

Blessi ykkur í bili.  


Aumingja Eiður...

Það er því miður orðið meira spennandi að lesa um fjármálasukk Eiðs en frammistöðu hans í fótboltanum síðustu vikur. Vonandi verður þó breyting á því hans vegna. 
mbl.is Eiður gæti fengið tækifæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona eru jólin

Góðan og blessaðan jóladag kæru vinir og ættingjar.

Fjölskyldan átti yndislegt kvöld í gær ásamt ömmu og afa og frændanum góða sem kom frá Ítalíu.

Litla stýrið var auðvitað orðin yfir sig spennt og eyddi síðustu orkunni í að rífa ekki aðeins upp sína pakka heldur bauð fram dygga aðstoð í að opna alla hina pakkana líkaWink. Þessi prósess tók nú reyndar einhverja þrjá klukkutíma svo þá var nú allur vindur úr minni og hún sofnaði svefni hinna réttlátu áður en klukkan sló miðnættiSleeping.

Vaknaði svo úthvíld í morgun til að kíkja í stígvélið sitt sem ennþá stóð í glugganum og fór í nokkurra mínútna þrjóskukast Angryþegar ég minnti hana á að síðasti jólasveinninn hefði komið til byggða í gær. En guði sé lof að þá ákvað hún að hvíla sig tvo tíma í viðbót Sleepingsvo restin af fjölskyldunni gæti hvílt sig áfram því það var auðvitað farið frekar seint í háttinn eins og verða vill á blessuðum jólunum.

Jólahangikjetið var á sínum stað í hádeginum og eins og faðir minn karlinn segir oft að þá held ég að það hafi sjaldan verið betra enda af jökuldælskum sauðum og taðreykt í heiðardalnum sjálfumTounge. 

Nú eftir kjétátið klæddi mannskapurinn sig í útifötin og lagðist í snjómokstur mikinn. Það eru jú hvít jól í meira lagi hér norðan heiða ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum landsmanna. Fyrir barðinu á skóflunum varð snjófjallið ógurlega sem reis hér fyrir sunnan hús í síðasta snjómokstri af bílastæðinu. Búin voru til neðanjarðargöng og rennibraut og ungir og aldnir brunuðu síðan niður á snjóþöturössunum með bros á vörSmile.Þessa stundina er síðan smá afslöppun. Sveppi krull hljómar í eyrunum eins og svo oft áður en heimasætan og litli orkuboltinn  sitja og horfa á þennan snilling leika listir sínar í leiksýningunni Algjör sveppi, dagur í lífi stráks sem kom í einum af pökkunum. Af loftinu heyrast ómur af yndislegum jólalögum Sigurðar GuðmundssonarWhistling en þar situr bóndinn fyrir framan tölvuna og heilsar upp á fjésbókarvini sína. Semsagt allt eins og það á að vera á blessuðum jólunum.

Kæru vinir og ættingjar, vona að þið hafið það sem allra best yfir hátíðina sem og alltaf og óska ykkur gleðilegra jólaHeart. 

 


Ánægjuleg tíðindi

Guði sé lof að spennunni er aflétt og salan heimiluð. Nú getur leiðin varla legið annað en uppá við Wink.

Áfram Liverpool


mbl.is Dómstóll heimilar sölu á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frækið björgunarafrek

Þetta er ótrúlegt björgunarafrek sem tók jú mun skemmri tíma en áætlað var í byrjun.
mbl.is 11 komnir úr námunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haustkoman

Heilir og sælir góðir hálsar.

Heilsa ykkur eftir nokkurt hlé nú þegar haustið er gengið í garð með allri sinni litadýrð og að þessu sinni veðurblíðu. Ég segi veðurblíðu því að á sama tíma í fyrrra var vetur konungur búinn að kasta á okkur kveðju á sama tíma og reyndar aðeins fyrr. En svona er Ísland í dag, óútreiknanlegt hvað veður snertir og reyndar ekki bara veðurfarslega séð, mótmælin fyrir utan Alþingi gefa til kynna að ástandið í landinu er sannarlega óútreiknanlegt og óstöðugt.

Fréttatímar flytja okkur endalausar fréttir af niðurskurði.Nú á beinlínis að jarða minni heilbrigðisstofnanir út á landi í þeim tilgangi að spara. Við sem vinnum í heilbrigðisgeiranum vitum að álagið mun eingöngu færast yfir á stóru sjúkrahúsin sem eru þegar í svelti.

IMG 6301

 

 Þetta mun birtast í auknu vinnuálagi sem er nú þegar ærið, endalausum útkallsvöktum, útbrenndu starfsfólki sem mun að lokum gefast upp og flýja land og líklega óánægðum viðskiptavinum en það segir sig sjálft að erfitt verður að veita góða þjónustu undir þessum merkjum.

Hver er þá sparnaðurinn þegar upp er staðið ? 

 

 

 

Það var reyndar ekki meiningin að beina orðum mínum í þessa átt en ég gat bara ekki hamið mig. En aftur að haustkomunni.  Litadýrð íslenskrar náttúru skartar sínu fegursta á þessum árstíma og þá er upplagt að bregða sér af bæ með myndavélina og mynda æskuna. Æskuna sem á að vera:

IMG 6295

 

 

 

 Áhyggjulaus ! 

 

 

 

 

IMG 6282

 

 

 

Örugg ! 

 

 

                                                                                            

IMG 6256
 
 
 
 
Lífsglöð ! 
 
 
 
 
 
                                                                                              
 
IMG 6242
 
 
 
 
 
 
Áhyggjulausa framtíð................... Vonandi. 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Lifið heil ! 

Feit og saðsöm fæða

Vona að veiðar míns heittelskaða og tengdaföðursins hér út á Firði hafi ekki stofnað makrílstofninum í hættu enda var ekki meiningin að veiða þá, þeir álpuðust bara á færið og voru gráðugri en alltWoundering . Hinsvegar hefði ég alveg getað verið án þeirra því þeir eru feitari en allt sem feitt er í fiskaríkinu og bragðast eftir því.....W00t  Gerðum semsé heiðarlega tilraun til að heitreykja kvikindin hér sunnan við hús á nýju heitreykinggræjunni sem ég gaf mínum heittelskaða á afmælisdaginn hans en það endaði allt í björtu báli og minnstu munaði að ég þyrfti að beita eldvarnarteppinu. Kannski það hafi verið hefndin fyrir að stofna þessari feitu fisktegund í hættu....Maður spyr sig ? En allt fór þetta nú vel að lokum og kvikindin enduðu í maga heimilismeðlima sem enn eru saddir Wink . Eigið góðan dag Smile
mbl.is ESB gagnrýnir makrílveiðarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona er lífið


 

Lífið er margbrotið .

IMG 4923

 

 

 Stundum erum við í sigurvímu.

Að hampa bikarnum í lok keppni er sannarlega góð tilfinning og sérstaklega þegar maður hefur lagt sig allan fram.

 

 

 

 

                                                                      

IMG 4396 

 

  Svo getur maður líka alveg verið "í skýjunum"eða alveg í "sjöunda himni" sem er líka  góð tilfinning.  

 

   

IMG 5026

 

 

 

 Að finna barnið í sér er nauðsynlegt af og til. Það ýtir "fullorðinsáhyggjum" til hliðar um stund og gefur okkur færi á að brosa af öllu saman.

 

 

 

 

IMG 4030

 


  Suma daga verðum við virkilega að taka á honum stóra okkar ef dæmið á að ganga upp. Það er jú nauðsynlegt að fá áskoranir annað slagið til að takast á við.

 

 

 

 

 

 

 

Þegar allt gengur upp eftir talsvert erfiði er sannarlega ástæða til að brosa breitt.

 

 

 

 

IMG 4420

 

 Svo koma dagar sem lífið snýst á hvolf...

 


IMG 3953

 

 

                                                                     

IMG 7282

 

   

 

 

Og aðra daga er maður svo þreyttur að tölvan nær ekki einu sinni að halda manni vakandi....

 

 

 

IMG 8284   

En langoftast er tilveran yndisleg og við   getum horft björtum augum til framtíðar. 

 

 

 

 

Eigið gott laugardagskvöld kæru vinir !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 53490

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

249 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband