Lífið er yndislegt

Heil og sæl. Já lífið er yndislegt þessa dagana. Það er ekki nóg með að í dag hafi verið rjómablíða í höfuðstað Norðurlands og sannkallað vor í lofti heldur tókst piltunum okkar í handboltanum að stöðva sigurgöngu Hafnfirðinga og senda þá aftur suður í 16 sm snjóalögin með skottið á milli fótannaSmile. Það gerði daginn líka ennþá betri að mínir menn í Liverpool héldu áfram sigurgöngu sinni á meðan að Unitedprinsarnir áttu tapleik og halda því spennunni áfram á lofti í ensku úrvalsdeildinni sem er náttúrlega bara hið besta mál.

Teygt úr tánum á Anfield
Áfram Liverpool Smile 
IMG_5777
Wink
En lífið er ekki bara fótbolti gott fólk þó stundum megi samt álíta svo. Framundan er jökuldælsk sveitasæla í allri sinni dýrð þar sem sauðburður og ljósmóðurstörf bíða okkar mæðgna og má segja að við séum búnar að bíða langeygðar eftir.
P3070145
Á kafi í ljósmóðurstörfunum 
Litli smalinn
Litli smalinn 
IMG_5480
Lukku skrukkan okkar heitin
Eigið góða vordaga Cool

Bloggfærslur 1. maí 2011

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

188 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband