Haust í lofti

Góðan og blessaðan föstudag nú þegar ágústmánuður en næstum allur.

Það er haust í lofti hér norðan heiða, rok og rigning.

Var að keyra unglingnum og vinum hans fyrir flugvél sem ber þá alla leið til Tenerife í beinu flugi héðan frá Akureyri. Það var spenningur í ungviðinu að sjálfsögðu en þarna er um að ræða 200 MA inga sem eru að fara í útskriftaferð. Mér er í fersku minni mín útskriftaferð frá ME fyrir rúmlega 20 árum sem var auk þess mín fyrsta utanlandsferð. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan og ég leyfi mér að efast um að einhverjir séu að fara í fyrsta skipti út fyrir landsteinana eins og ég var þá. En það verður líklega alveg jafn glatt á hjalla hjá þeim eins og var hjá mér og mínum skólafélögum þarna á síðustu öld.

Minn heittelskaði pakkaði líka ofan í tösku í dag. Nei hann er ekki fluttur út fyrir fullt og allt. Svo erfið er ég nú ekki....

IMG 2809

 

Leið hans lá yfir í Skagafjörðinn þar sem hann verður við laxveiðar í Húseyjarkvísl næstu daga ásamt félögum sínum í Mokveiðifélaginu . Við mæðgur erum því einar heima um helgina og ætlum að hafa það notalegt. 

 

 

 

 Annars hefur sumarið liðið leifturhratt. Við fjölskyldan höfum átt góðar stundir saman við árbakkann, á fótboltavellinum og í fellihýsinu.

IMG 1982

 Búin að fylgja heimasætunni á fótboltamót hingað og þangað þs skiptust á skin og skúrir þó svo skinið hafi nú verið í miklum meirihluta. Lið hennar í 6. flokki KA stóð sig með stakri prýði í sumar og eru þær ma Norðaustur og Austurlandsmeistarar þetta árið. Svo vonar maður bara að fótboltaáhuginn fylgi þeim næstu árin því þetta er svo gott veganesti inní unglingsárin.

 

 

Við gamla settið erum búin að eyða talsverðum tíma við árbakkann. Það var sannarlega ævintýri að fá að taka þátt í að landa fyrsta laxi  sögunnar sem veiddur hefur verið á æskuslóðum mínum á Jökuldal.

IMG 2901

Hver hefði trúað því að Jökulsá á Dal sem eitt sinn var aurmesta á landsins ætti eftir að færa okkur laxa uppá Jökuldal? Svo eru menn að agnúast út í Kárahnjúkavirkjun! Þetta er bara snilld. Árfarvegurinn er orðinn svo fallegur og margir gullfallegir veiðistaðir sem litu dagsins ljós eftir að þetta grugguga fljót var beislað. Það er því enginn söknuður í mínum huga. Uppbyggingastarf Strengja á Jöklu og þverám hennar er til mikils sóma fyrir sveitafélagið og á eftir að draga margan veiðimanninn til sín næstu árin.

 

IMG 2383

 

 

Litla skrudda var líklega búin að fá nóg af veiði og fótbolta og þótti nú bara gott og gaman að komast í leikskólann að loknu sumarfríi og hitta vini sína.

 

 

 

Semsagt haust í lofti og sumarfrísbragurinn sem einkennt hefur líf okkar síðustu vikur horfinn í haustvindinn.  Vonandi eigið þið góða helgi og hver veit nema maður bregði sér eitthvað á menningarvöku sem nú er skollin á hér norðan Alpafjalla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 53521

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband