Home alone

Gott og blessað laugardagskvöld !

Hér norðan Alpafjalla er brakandi blíða eins og víða annars staðar á Fróni. Hafgolan minnti reyndar aðeins á sig og var það nú bara hressandi eftir allt sólskiniðCool. Hitametið var auðvitað fyrir austan í minni yndislegu sveit milli sanda,nánar tiltekið á Jökuldalnum, fannst þeir nefna töluna 22 gráður í því sambandi. 

Fjölskyldan er horfin til Sauðaárkróks þs fram fer hið árlega Landsbankamót í fótbolta hjá 4,5 og 6 flokki stúlkna. Heimasætan spilar með A liði KA í 6 flokki og þessar elskur eru búnar að vinna alla sína leiki í dag. Duglegar stelpur. 

Marki fagnað

Á morgun heldur fjörið áfram og þá mæta þær m.a erkifjendunum í Breiðablik. Mín situr heima með sárt ennið þs hún þurfti að vinna um helgina. Að sumu leyti er ég þó fegin því það tekur virkilega á taugarnar að standa á hliðarlínunni. Það er eiginlega alveg ótrúlegt. Miðað við aldur keppenda gengur rausið sem maður heyrir á hliðarlínunni stundum alltof langt og eiga þá bæði foreldrar og þjálfarar í hlut. Sumir eru náttúrulega bara létt gjeggaðir og ættu ekki að koma nálægt íþróttum ungmenna. Nóg um það.

 

Nú sit ég semsagt ein heima á laugardagskveldi og veit varla hvernig ég á að haga mér. Það er vinnudagur á morgun svo langliklegast er að ég taki lífinu með róSleeping. Nú svo gefst líka góður tími til að sinna blogginu.Svo má nú alltaf kíkja á imbakassann, þessa stundina er hið margfræga Amerikas got talent þs upp treður furðulegasta fólk á öllum aldri, sumir verða frægir og aðrir verulega svekktir eins og í öllum öðrum amerískum raunveruleikaþáttum þar sem alla dreymir um að komast til Vegas.

Var að hlusta fréttirnar og heyrði af köppunum sem gengu sjö sinnum á Esjuna í dag til styrktar krabbameinsveikum börnum. Dáist að svona fólki sem er virkilega tilbúið að leggja á sig til styrktar góðu málefni. Sjálf er ég hreyfiglöð en hef þó aldrei á Esjuna komið. Við eigum okkar Esju hér norðan heiða sem kallast Súlur og er vinsælt göngufjall og á þær hef ég arkað nokkrum sinnum sjálfri mér til ánægju og yndisauka.

Læt þessu lokið í bili. Vonandi eigið þið ánægjulegt laugardagskvöld hvort sem þið eruð ein eða í hópi fjölskyldu eða góðra vina Wink.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 53526

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

233 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband