Vorið er komið og grundirnar gróa.

Já það er víst komið vor enn og aftur. Það er ekkert eins yndislegt og koma út og anda að sér gróðurilminum á góðu vori. Ég tala nú ekki um að hægt er að skjótast á milli húsa án þess að þykka dúnúlpan sé með í för. Svo verða dagarnir lengri og lengri og maður fyllist orku og bjartsýni og brosunum fjölgar.

En allt hefur sínar neikvæðu hliðar og svo er líka með vorkomuna því þegar vorið heilsar kveðja aðrir góðir gestir af sjónvarpsskjánum  sem hafa heiðrað okkur með nærveru sinni í allan vetur. Þarna er ég að sjálfsögðu að tala um enska boltann sem hefur glatt hjarta mitt og annarra á dimmum síðkvöldum. Að sjálfsögðu er ég ekki sátt með úrslitin en er þess fullviss að við tökum þetta á komandi leiktíð og sendum United út í kuldann að nýju.

Júróvisjón kom og fór líka og eftir sitja ljúfar minningar um annað sætið sem munu ylja um aldur og ævi. 

Og meira af söngvaseið því Idolin hafa líka kvatt okkur bæði það ameríska og okkar litla íslenska. Hrafna hélt uppi heiðri Austfirðinga og kom sú og sigraði en í því ameríska var hinn raddmikli Adam felltur af hinum sykursæta Kris ,mörgum að óvörum. En þetta eru gestir sem munu banka uppá aftur þegar haustið heilsar og því engin ástæða til að örvænta.

Eigið góðan dag og guði sé lof fyrir Greys.......  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gunna greys! er ekki í lagi????????

Hafdis (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 16:28

2 identicon

SEGI ÞAÐ SAMA GREYS! HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ?????????:-0

Margrét.... (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnublogg

Höfundur

Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Eiginkona, móðir, stundum svolítið þreytt húsmóðir, ekki amma ennþá , ofurhjúkka í 40 % starfi og veiðikona.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 53561

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Christina Agulilera - Beautiful
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

223 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • wpid-weight lifting
  • IMG_6662
  • IMG_1090
  • IMG_1144
  • 75808_700_w

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband